Lifestyle Camper X-Line Moto Premium
Lifestyle Camper X-Line Moto Premium er harðgert offroad leiguhýsi fyrir þá sem vilja taka ævintýrið skrefinu lengra. Hýsið er sérstaklega hannað fyrir þá sem vilja ferðast með mótorkrossara eða annað létt torfæruhjól, með sérhannaðri festingu fyrir framan dráttarbeislið sem gerir þér kleift að taka hjólið með í ferðalagið.
Hýsið býður upp á þægilegt svefnpláss fyrir tvo inni í hýsinu og með topptjaldi geta 2–3 til viðbótar gist, þannig að alls geta 4–5 ferðast saman. Þetta gerir X-Line Moto Premium að frábærum kost fyrir vini, pör eða litla hópa sem vilja sameina útivist og akstursíþróttir.
X-Line Moto Premium kemur fullbúið í leigu og er tilbúið í útileguna frá fyrstu stundu. Það er búið öflugu Webasto hitakerfi og öflugri sjálfstæðri offroad fjöðrun með gormum og dempurum sem tryggir mýkri akstur, aukið öryggi og betra grip við krefjandi aðstæður.
Aftan á hýsinu er snjallt útieldhús með vaski, krana og heitu og köldu vatni. Auk þess fylgir allur helsti búnaður með, þannig að þú getur lagt af stað með sem minnsta fyrirhöfn og einbeitt þér að ferðalaginu.
Helstu eiginleikar:
Festing fyrir mótorkrossara / torfæruhjól á dráttarbeisli
Svefnpláss fyrir 2 inni í hýsinu
Topptjald með svefnplássi fyrir 2–3 til viðbótar
Pláss fyrir alls 4–5 í ferðalaginu
Webasto hitakerfi
Sjálfstæð offroad fjöðrun með gormum og dempurum
Snjallt útieldhús með vaski, krana og eldunaraðstöðu
50L vatnstankur með rafmagnsdælu
Heitt og kalt vatn
Borðbúnaður fylgir – diskar, glös og hnífapör
Borð og stólar til útilegu
Gasgrill fylgir
Gaskútur fylgir
Útileguljós og annar nytsamlegur búnaður
Tæknilegar upplýsingar:
Heildarlengd: ca. 370 cm
Breidd: ca. 195 cm
Hæð: ca. 180 cm
Eigin þyngd: ca. 550–650 kg
Heildarþyngd: allt að 750–1000 kg
Dýna: ca. 200 x 140 cm
Vatnstankur: 50L
Rafmagn: 12V / 230V kerfi
Tengi fyrir landstraum
Undirvagn: galvaniseruð grind
Fjöðrun: sjálfstæð offroad fjöðrun með gormum og dempurum
Yfirbygging: slitsterk og veðurþolin húðun
Fyrir hverja hentar X-Line Moto Premium?
- Þau sem vilja taka mótorkrossara eða torfæruhjól með í ferðalagið
- Ævintýragjarna ferðalanga sem vilja komast út fyrir alfaraleiðir
- Vinahópa eða pör sem vilja sameina útivist og akstur
- Þau sem vilja vel búið offroad leiguhýsi tilbúið í ferðina
- Þau sem vilja hámarks frelsi og sveigjanleika í útivist























