N-Venture Off-Road
N-Venture Off-Road er harðgert offroad leiguhýsi fyrir þá sem vilja einfalt, létt og áreiðanlegt hýsi sem kemst þangað sem hefðbundin hjólhýsi komast ekki. Hýsið er sérstaklega hentugt fyrir íslenskar aðstæður – hvort sem ferðin liggur um hálendið, fjallvegi eða afskekkta staði.
Hýsið býður upp á þægilegt svefnpláss fyrir tvo inni í hýsinu og með topptjaldi sem fylgir með geta 2 til viðbótar gist, þannig að alls geta 4 ferðast saman. Þetta gerir N-Venture að frábærum kost fyrir pör, vini eða litla hópa sem vilja komast lengra með einföldum og áreiðanlegum búnaði.
N-Venture Off-Road kemur fullbúið í leigu og er tilbúið í útileguna frá fyrstu stundu. Það er búið öflugu hitakerfi, sjálfstæðri offroad fjöðrun sem tryggir stöðugleika og gott grip á ójöfnu undirlagi, og vel hönnuðu útieldhúsi með vaski, krana og heitu og köldu vatni.
Auk þess fylgir allur helsti búnaður með – þannig að þú getur lagt af stað með sem minnsta fyrirhöfn og einbeitt þér að ferðalaginu.
Myndbönd af N-Venture;
https://youtu.be/yZHybOAHby4?si=fEUxNeieqGSQMYuV
Helstu eiginleikar:
Svefnpláss fyrir 2 inni í hýsinu
Topptjald fylgir – pláss fyrir 2 til viðbótar
Pláss fyrir alls 4 í ferðalaginu
Hitakerfi
Sjálfstæð offroad fjöðrun sem tryggir stöðugleika og betra grip
Snjallt útieldhús með vaski, krana og eldunaraðstöðu
Vatnstankur með rafmagnsdælu
Rafmagnskerfi + sólarsella
Hleðsla og rafmagn fyrir búnað í ferðalaginu
Borðbúnaður fylgir – diskar, glös og hnífapör
Borð og stólar til útilegu
Gasgrill fylgir
Gaskútur fylgir
Útileguljós og annar nytsamlegur búnaður
Tæknilegar upplýsingar:
Innanmál (ca.): 209 × 140 × 123 cm
Svefnrými: ca. 200 × 140 cm
Eigin þyngd: ca. 600 kg
Heildarþyngd: ca. 1000 kg
Dekk: offroad dekk
Öxull: bremsaður
Rafmagn: 12V / 230V kerfi
Tengi fyrir landstraum
Sólarsella
Fyrir hverja hentar N-Venture Off-Road?
- Þau sem vilja létt og einfalt offroad leiguhýsi
- Pör sem vilja komast út fyrir alfaraleiðir
- Vinahópar eða litlar fjölskyldur (4 saman)
- Ferðalangar sem vilja mæta tilbúnir í ferðina
- Þau sem vilja traust, einfalt og harðgert hýsi fyrir íslenskar aðstæður
















